Orðin tóm - frekari hugleiðingar
12.11.2007 23:14:33 / Talhonjik

Tónlistargleði

Eins og allir vita er ég mikil tónlistarmanneskja, og bý yfir undraverðum hæfileikum þegar kemur að því að finna “nýja” klassatónlist. Af góðmennsku minni hef ég því ákveðið að deila af þessum hæfileikum til lesenda – hér á eftir fara nokkur tónlistarmyndbönd sem enginn ætti að missa af, þau eru hvert fyrir sig stórvirki á sínu sviði. Njótið vel.

 

-Tal.

http://www.youtube.com/watch?v=yRmqZRPgK1w Heimsins svalasta mannvera er fundin – gaurinn í þessu myndbandi er svo kúl að ég skil ekki hvernig svona mikil kúlheit komast fyrir í einum manni. Það ætti að vera í lögum einhversstaðar að allir þeir sem vilja kalla sig svala verða fyrst að fara í eins árs þjálfunarbúðir hjá þessum manni. Hefði Plató séð þennan mann hefði hann gefið út myndskreytt rit um frummyndakenningu sína til þess eins að geta haft mynd af þessum manni hjá textanum sem útskýrði frummynd svalheita og karlmennsku. Ekki skemmir lagið heldur fyrir. Gellan hinsvegar ekki nærri jafn svöl, er klárlega á helíumi miðað við hvernig hún syngur.

Hápunktur: Ofur, ofur svala innkoman hjá gaurnum í upphafi. Og dansrútínan sem hefst 02:50, ég er viss um að þeir eru að segja eitthvað, ég kann bara ekki nóg í táknmáli.

http://www.youtube.com/watch?v=LbvP7dT3Dx0 Hinn indverski Michael Jackson – jafn dularfull vera og hinn bandaríski. Grípandi laglínan bætir ekki upp fyrir rauða leðurgallann (sem er á þessu ergilega stigi mitt á milli þess að passa og vera of þröngur, þannig að hann er hvorki eins og hann ætti að vera né nógu þröngur til að það sé smekklega viðbjóðslegt, og er því bara púkalegur). Maður eyðir öllu myndbandinu í að velta því fyrir sér hversu heimsk gellan hafi þurft að vera til að fara ein út í myrkrið með gaur í púkalegum rauðum leðurgalla og með vampírutennur.

Hápunktur: Taugakippsdansinn sem hefst 00:17, og má síðan sjá endurtekinn út allt myndbandið.

http://www.youtube.com/watch?v=4SyVo2YlpLo Semi-klassíska söngkonan Sarah Brightman á sér skuggalega fortíð, eins og sést hér. Hvítt spandex er allsráðandi þema í þessari vísindaskáldskaparorgíu þar sem hugtökum, frösum og laglínum úr Star Wars, Star Trek, Flash Gordon og fleiri sci-fi fyrirbærum er hrært saman og glimmeri hellt yfir. Þegar listrænir dansararnir og ofvirka reykvélin eru síðan komin í spilið er niðurstaðan óhjákvæmileg.

Hápunktur: Margir mjög háir punktar, en þó stendur innkoma Borat í líki glimmerhomma (00:38 ) einna hæst. Einnig er viðlagsdansinn (t.d. 01:23) furðu eftirminnilegur – þær labba bara hægt í einfaldri röð með einhverskonar lóð, en það er samt eitthvað undarlega heillandi við það.

 

http://www.youtube.com/watch?v=8hAqfAgh3go Þetta myndband er myndband hinna miklu ósvöruðu spurninga. Af hverju kjurrmyndirnar af henni með grettusvipi og skærlitaðar hárkollur? Hvaðan kemur eiginlega hugmyndin með bananann? Af hverju þessar öru og öskrandi litabreytingar? Trúir hún því í alvörunni að dansinn bæti myndbandið? Veit hún hversu undarlegir kollhnísarnir hennar eru, sérstaklega með tilliti til þess að hún er í pilsi? Hverskonar hugsunarháttur býr að baki svona myndbandi? Ef einhver svör eru til við þessum spurningum búa þau í höfðinu á Ninu Hagen – og þaðan náum við þeim væntanlega aldrei.

Hápunktur: Hörð samkeppni. Góður sprettur þó 00:57 þar sem bananinn sem hún er að leika sér með brotnar, og dettur ofan í hálsmálið hjá henni. Nina er þó ekki af baki dottin, hún heldur bara áfram með brotinn banana.

Anna skrifaði
hahaha ég gæti lesið og horft á þessa færslu endalaust....afskaplega góðar pælingar og fyndin myndbönd...:D hehehe

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.